31.1.2023 | 21:06
Járnbrautarslys í beinni útsendingu
Björn Bjarnason leggur á heimasíðu sinni bjorn.is í dag út af frétt Þórarins Þórarinssonar í Fréttablaðinu, þegar hann hefur eftir mér að framboð Miðflokksins í Alþingiskosningum 2021 hafi verið mér með öllu óviðkomandi. Ég segi þar að framboðið hefði haft skírskotun til þriðja orkupakkans hefði ég einhverju um ráðið.
Björn ályktar að innan Miðflokksins hafi menn ekki viljað flagga þriðja orkkupakkanum og andstöðu við hann fyrir kosningarnar.
Ég viðurkenni að ég kann ekki svar við þessari spurningu. Mér er ekki ljóst hvaða sjónarmið lágu til grundvallar framboði Miðflokksins til Alþingiskosninga 2021. Kenning Björns Bjarnasonar í því efni sýnist jafn góð og hver önnur.
Eins og aðrir varð ég vitni að járnbrautarslysi í beinni útsendingu þar sem Miðflokkurinn beið afhroð í kosningunum. Flokkurinn mældist í tveggja stafa tölu þegar hann beitti sér sem mest gegn þriðja orkupakkanum. Þinglokkurinn var eins og ókleift bjarg á Alþingi. Þessi þingflokkur hefði getað látið myndarlega til sín taka að afloknum kosningum og jafnvel haft áhrif á meginlínur ef svo hefði borið undir.
Þingflokksins var í engu getið í kosningabaráttunni, rétt eins og hann hefði ekki verið til og hefði engu áorkað. Ekki liggja fyrir skýringar á þessari afstöðu.
Já, þeir gerast með undarlegum hætti hlutirnir í pólitíkinni. Fullveldi þjóðarinnar og yfirráð hennar yfir verðmætum orkuauðlindum kallar á öfluga málsvara á Alþingi. Þá er ekki að sjá eins og nú standa sakir.
25.1.2023 | 20:41
Viðbrögð við svari Björns Bjarnasonar vegna þriðja orkupakkans
Björn Bjarnason bregst á vefsíðu sinni bjorn.is við grein minni í Morgunblaðinu í gær. Tek fram að á vefsíðu hans ber margt gott fyrir augu.
Björn teflir ekki fram neinum rökum til stuðnings þriðja orkupakkanum og sýnist ófær um að taka á málefnalegum athugasemdum ráðunauta ríkisstjórnarinnar. Hann gerir enga tilraun í þá átt.
Björn Bjarnason segir norsku samtökunum Nei til EU hafi tekist að virkja fjölmennan hóp háværra andstæðinga þriðja orkupakkans í von um að meirihluti alþingismanna legðist gegn þriðja orkupakkanum. Þessi orð Björns Bjarnasonar gefa tilefni til að spyrja um heimildir og hver var þessi fjölmenni hópur? Hvernig beitti hann sér gegn þriðja orkupakkanum? Hverjir kynnu að vera nafngreindir í þessum hópi?
Björn segir mig hafa fallið í Alþingiskosningum 2021. Þetta er rangt því ég gaf ekki kost á mér til framboðs. Framboð Miðflokksins 2021 var mér með öllu óviðkomandi en hefði haft skírskotun til þriðja orkupakkans hefði ég einhverju um ráðið.
Björn Bjarnason lýkur færslunni á vefsíðu sinni með orðunum að fráleitt hefði verið að Ísland beitti neitunarvaldi sínu vegna þessa máls. Þessi fullyrðing er eins og fleiri slíkar sem Björn lætur frá sér fara um þetta mál: Órökstudd. Já, málstaðurinn sýnist ekki betri en þetta.